Kókos-salsa:

Hráefni
» 1/4 stk. ferskur ananas
» 2 stk. rauðlaukar
» 4 stk. tómatar
» 1/2 stk. grænt chilialdin
» 1 stk. rautt chilialdin
» 200 g kókosflögur
» 1 msk. fiskisósa
» 1 msk. ferskt kóríander
» salt og pipar
» 1 tsk. grænmetiskraftur
» 1 stk. lime, börkur og safi

Aðferð

Skerið ananasinn í litla bita, afhýðið og saxið rauðlauka og bætið saman við. Afhýðið tómatana með því að rista kross á botninn, fyrir miðju. Sjóðið vatn í potti og setjið tómatana út í sjóðandi vatnið í um 30 sek., hellið vatninu strax af og kælið tómatana í mjög köldu vatni. Afhýðið tómatana og skerið í litla bita. Blandið tómötunum saman við ananas og rauðlauk. Fræhreinsið chili, saxið mjög smátt og bætið saman við, ásamt lime-berki og safa, fiskisósu, kókosflögum og kóríander.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar