Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Skötuselur í kryddmauki
- Hráefni
- » 1 kg skötuselur
- » 1/2 búnt rauð basilíka
- » 1/2 búnt oregano
- » 1 búnt minta
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 stk. sól.urrkaðir tómatar í olíu
- » 1 msk. dijon sinnep
- » 1 dl basilíkuolía
- » 1 stk. sítróna, börkur og safi
- » salt og pipar
Aðferð
Skerið skötuselinn í 100 g bita. Takið kryddjurtablöðin af stilkunum á basilíku, oregano og mintu, og setjið í matvinnsluvél. Afhýðið hvítlauk og bætið honum ásamt sól.urrkuðum tómötum saman við og maukið aðeins. Bætið sinnepi út í og síðan olíunni. Saltið og piprið fiskinn. Takið um 3 msk. af kryddmaukinu til hliðar og geymið. Leggið skötuselinn í afganginn af maukinu. Rífið börk af sítrónu yfir og látið marinerast í nokkrar klst. áður en grillað er.Grillið á vel heitu grilli í nokkrar mín. á hvorri hlið. Notið restina af kryddmaukinu með safa úr hálfri sítrónu sem salatdressingu og berið salat fram með skötuselnum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/613/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










