Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Rækju-ananas-spjót
- Hráefni
- » 24 stk. risarækjur
- » 1/2 stk. ananas
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 3 msk. ólífuolía
- » 1 stk. stórt rautt chilialdin
- » 1/2 búnt minta
- » salt og pipar
- » grillpinnar
Aðferð
Skerið ananasinn í tvennt og svo í sneiðar, passið að hafa þær ekki of þunnar. Skelflettið risarækjurnar. Afhýðið hvítlauk og pressið út í ólífuolíuna. Fræhreinsið chili og saxið. Saxið mintuna. Þræðið rækjur og ananas til skiptis á grillpinna, þannig að á hverjum pinna séu 4 rækjur og 4 ananassneiðar. Smyrjið spjótin með hvítlauksolíu. Saltið og piprið og stráið svo smávegis af chili og mintu yfir. Grillið í nokkrar mín. á hvorri hlið. Blandið restinni af hvítlauksolíunni, mintu og chili saman og notið sem dressingu á spjótin þegar þau eru tilbúin.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/614/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










