Grillaðir humarhalar

Hráefni
» 40 stk. humarhalar
» 4 stk. hvítlauksgeirar
» 6 msk. ólífuolía
» 1 búnt ítölsk steinselja
» salt og pipar
» 50 g smjör
» 1/2 stk. sítróna
» 1 dl rjómi
» 1 tsk. grænmetiskraftur
» ítalskt smábrauð til að grilla

Aðferð

Kljúfið humarhalana og fjarlægið görnina. Afhýðið hvítlauk og pressið út í ólífuolíuna. Saxið steinselju yfir. Raðið humarhölunum á fat, kryddið með salti og pipar og smyrjið hvítlauksolíunni á humarinn. Grillið humarinn í örfáar mínútur en tíminn fer eftir hitanum á grillinu. Bræðið smjörið í potti. Skerið sítrónuna í sneiðar og kreistið safann úr tveimur sneiðum út í smjörið. Setjið afganginn af hvítlauksolíunni saman við. Hellið rjómanum út í pottinn og kryddið með grænmetiskrafti. Rjómasósan er til að dýfa humarhölunum í um leið og þeir eru borðaðir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar