Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Saltfiskur ítölsku ömmunnar
- Hráefni
- » 1 kg saltfiskhnakkar með roði
- » 3 stk. hvítlauksgeirar
- » 3 msk. ólífuolía
- » stórir rósmarínstönglar
- » nýmalaður pipar
- » sítrónuolía
Aðferð
Skerið saltfiskinn í 16 bita. Afhýðið hvítlauk og pressið út í ólífuolíuna. Smyrjið smá hvítlauksolíu á saltfiskinn. Grillið saltfiskinn, stráið rósmaríni yfir og smyrjið af og til með olíunni á meðan verið er að grilla. Stráið restinni af rósmaríni yfir og kryddið með nýmöluðum pipar þegar saltfiskurinn er tilbúinn. Gott er líka að hella örlítilli sítrónuolíu yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/616/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










