Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Túnfiskur með piparrót
- Hráefni
- » 800 g túnfisksteikur (fást frosnar)
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 msk. ferskt fáfnisgras (estragon)
- » 2 msk. piparrót
- » 4 msk. sítrónuolía
- » pipar
- » 2 sm engiferrót
- » 1 tsk. wasabi
- » 1 tsk. japönsk sojasósa
- » maldon salt
Aðferð
Skerið túnfiskinn í fjórar 200 g steikur. Afhýðið hvítlauk og maukið mjög fínt ásamt fáfnisgrasi og piparrót. Bætið 2 msk. af sítrónuolíu saman við. Kryddið túnfiskinn með pipar og smyrjið helmingnum af maukinu á báðar hliðar hans. Afhýðið og rífið engifer út í afganginn af kryddmaukinu og bætið wasabi, soja og afganginum af sítrónuolíunni saman við. Grillið túnfiskinn mjög stutt á báðum hliðum, miðjan á að vera hrá. Stráið smá salti yfir og setjið restina af kryddmaukinu á túnfiskinn þegar hann er tilbúinn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/617/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










