Fylltur silungur með hvítlauk

Hráefni
» 4 stk. vænir silungar
» 8–12 stk. hvítlauksgeirar
» gróft sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn
» 1 búnt steinselja
» 1 stk. sítróna
» olía til penslunar

Aðferð

Flakið silunginn og roð- og beinhreinsið flökin. Látið helminginn af flökunum á grillgrind. Afhýðið hvítlauk og skerið í sneiðar. Dreifið hvítlauknum jafnt á silungsflökin. Saltið og piprið eftir smekk. Rífið steinseljuna niður og látið vel af henni ofan á hvert flak og kreistið sítrónusafa yfir. Látið hinn helminginn af flökunum ofan á og lokið grillgrindinni. Penslið með góðri olíu og grillið þar til að roðið er orðið stökkt og fiskurinn eldaður.

Berið fram með góðu salati, brauði og öðru tilfallandi grillmeðlæti. Þetta er einfaldur og góður grillréttur sem hentar vel í sveitinni og við silungsveið ina. Uppskriftin miðast við fjóra.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar