Heilt þorskflak, stökkgrillað á roðinu

Hráefni
» 1 stk. smáþorskur, miðlungsstór
» 3–5 stk. hvítlauksgeirar
» lítið búnt steinselja
» 1 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
» 2 stk. sítrónur
» salt og hvítur pipar
» Meðlæti:
» 1/2 stk. íslensk agúrka
» 4 stk. íslenskir tómatar

Aðferð

Gerið að þorskinum, hreistrið hann og flakið, beinhreinsið og snyrtið. Afhýðið hvítlauk og hakkið hann og steinseljuna. Blandið saman við ólífuolíu. Kreistið sítrónusafa yfir flökin. Saltið og piprið. Gott er að láta flökin standa í um 15 mín. Látið þorskflakið, með roðhliðina niður, á miðlungsheitt grill. Penslið stöðugt með kryddolíunni á meðan verið er að grilla.

Athugið að flakið á að grillast aðeins á roðhliðinni og að hitinn á grillinu ætti helst ekki að vera „brennandi“.

Þegar fiskurinn er farinn að „vinda aðeins upp á sig“, leggið þá fat eða disk ofan á og farið með grillspaðann undir flakið. Losið varlega af grillinu og snúið við, beint á fatið eða diskinn. Hellið afganginum af steinselju-hvítlauksolíunni yfir. Skerið agúrkur í sneiðar og tómata í báta og berið fram með.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar