Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Skötuselsmedalíur með „gremolada“
- Hráefni
- » 800 g skötuselur
- » 1 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- » 1 búnt basilíka
- » 3–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 1/2 stk. sítróna, börkur og safi
- » gróft sjávarsalt
- » svartur pipar úr kvörn
- » 1 stk. kúrbítur
- » 1 stk. eggaldin
- » 1 poki rúkólasalat
Aðferð
Flakið og snyrtið skötuselinn og skerið flökin í um 2 sm þykkar og jafnar steikur. Látið ólífuolíu, basilíku, afhýddan hvítlauk og örlítið af röspuðum sítrónuberki í matvinnsluvél og maukið þar til allt er vel blandað. Þessi kryddolía heitir „gremolada“ í ítölsku eldhúsi og er talsvert algeng, mest notuð á grillaðan fisk, grænmeti og pastarétti. Hún er einnig notuð til þess að pensla ofan á brauð strax og það kemur út úr ofni. Grillið skötuselssteikurnar í 2–3 mín. á hvorri hlið og penslið stöðugt með „gremolada“. Þegar skötuselurinn er tilbúinn setjið þið hann á fat og skvettið smávegis af „gremolada“-olíunni yfir. Kreistið smá sítrónusafa yfir skötuselinn og saltið og piprið með svörtum pipar eftir smekk í lokin.Berið fram með grilluðum kúrbítssneið um, sem einnig eru penslaðar með „gremolada“, og eggaldini sem hefur verið skorið í um 1 sm þykkar sneiðar, lagt í djúpt sigti og saltað í 1 klst. Takið sneiðarnar þá úr saltinu og þerrið vel með eldhúspappír. Grillið eins og þær koma fyrir. Einnig er hefðbundið að bera ferskt rúkólasalat fram með. Snúið því upp úr smá jómfrúarolíu ásamt grófu salti og smávegis af rifnum parmesanosti. Uppskriftin miðast við fjóra.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/622/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










