Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Rjóma-hvítlaukssósa
- Hráefni
- » 20 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 dl rjómi
- » 1 dl sýrður rjómi, 36%
- » 1 stk. sítróna, safinn
- » 1 tsk. dijon sinnep
- » nokkrir dropar hlynsíróp
- » salt og hvítur pipar
Aðferð
Afhýðið hvítlauk og hitið í potti með rjómanum, að suðumarki. Létt sjóðið við vægan hita í 20–30 mín. eða þar til hvítlaukurinn er orðinn linur. Kælið niður og maukið í matvinnsluvél ásamt sýrðum rjóma, sítrónusafa, sinnepi og hlynsírópi. Saltið og piprið eftir smekk. Þessa sósu má gera deginum áður og láta standa í kæli. Magnið af hvítlauk er smekksatriði. Berið sósuna fram kalda.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/623/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










