Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Sterkkryddaðar risarækjur í skel
- Hráefni
- » 20 stk. risarækjur í skel
- » Kryddolía
- » 1/2 dl sesamolía
- » 1/2 tsk. cuminfræ
- » 1/2 tsk. kardimommufræ
- » 1/2 tsk. ferskur engifer
- » 1/2 tsk. kóríanderfræ
- » 1/2 tsk. sterkt karrí
- » 1/2 tsk. hvítlauksduft
- » 1 tsk. sojasósa
- » 1 msk. Nam Pla (tælensk fiskisósa)
Aðferð
Þíðið rækjurnar í kæliskáp yfir nótt og þerrið vel á eldhúspappír áður en þið setjið kryddolíuna yfir.Steytið cumin, kardimommur, engifer og kóríander í mortéli. Blandið öllu sem fer í kryddolíuna saman og hellið yfir risarækjurnar. Athugið að þetta er einkar auðvelt í allri framkvæmd þótt innihaldslýsingin sé dálítið löng. Geymið á köldum stað í um 2 klst. Grillið rækjurnar í skelinni í 11/2–2 mín. á hvorri hlið. Penslið með kryddolíunni á meðan á steikingu stendur. Rækjurnar eru borðar heilar með fingrunum og skelflettar um leið. Gott er dýfa þeim í sæta chili-sósu, sem fæst tilbúinn frá Thai Choice. Berið fram með grilluðum vorlauk og smámaís ásamt sneiddu chilialdini.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/627/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










