Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Sjávarréttaspjót með kartöflubátum
- Hráefni
- » 250 g skötuselur
- » 250 g laxaflak
- » 250 g humarhalar
- » 2 stk. græn paprika
- » 1 stk. kúrbítur
- » 1 dós „smoked chilli“ frá Hot Spot
- » salt og pipar
- » grillpinnar
- »
- » Meðlæti
- » 700 g kartöflur
- » 3 dl „Wok Szechvan Style“ sósa frá Hot Spot
- » salt
- » olífuolía
Aðferð
Skerið skötusel og lax í fallega bita. Fræhreinsið papriku og skerið í bita. Skerið kúrbítinn í bita og þræðið fiskinn og grænmetið upp á grillpinna. Athugið að láta trépinna liggja í vatni í 4–6 tíma áður en grillað er svo að þeir brenni ekki þegar grillað er. Makið „Sweet chilli“-sósunni á fiskinn og grænmetið á pinnunum og grillið síðan á vel heitu grilli í 3–4 mín. Kryddið með salti og pipar.Meðlæti:
Skerið hverja kartöflu í fjóra báta og setjið í smurt eldfast mót með „Wok Szechvan Style“-sósu, salti og ólífuolíu. Bakið kartöflurnar við 180°C í eina klst.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/630/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










