Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Grilluð bleikja með eplasalati
- Hráefni
- » 800 g bleikjuflök
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 msk. fersk basilíka
- » 2 msk. ferskt kóríander
- » 2 msk. fersk steinselja
- » 100 g smjör
- » salt og pipar
- » álpappír
Aðferð
Hafið smjörið við stofuhita. Snyrtið bleikjuflökin og leggið eitt og eitt á álpappír, með roðhliðina niður. Afhýðið hvítlauk og saxið. Grófsaxið basilíku, kóríander og steinselju og blandið saman við mjúkt smjörið ásamt hvítlauk. Smyrjið bleikjuflökin vel með kryddsmjörinu og krydduð með salti og pipar. Lokið álpappírnum og eldið á vel heitu grilli með roðhliðina niður, í um 8 mín.Þessi uppskrift er notuð í Eplasalat
Meðlæti
Eplasalat
- Hráefni
- » 2 stk. græn epli
- » 1 bolli græn vínber
- » 2 dl rjómi
- » 1 msk. sykur
- » 100 g sýrður rjómi
- » 1 tsk. sítrónusafi
Aðferð
Flysjið eplin, takið kjarnana úr og skerið í litla teninga. Skerið vínberin í tvennt og steinhreinsið. Þeytið rjómann með sykrinum. Blandið sítrónusafa saman við sýrða rjómann og þeirri blöndu síðan varlega saman við þeytta rjómann. Bætið eplum og vínberjum varlega saman við.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/632/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










