Sinnepssósa

Hráefni
» 50 g skalottlaukur
» 1 msk. smjör
» 8 dl fiskisoð
» 5 stk. hvít piparkorn
» 2 stk. lárviðarlauf
» 6 dl rjómi
» 1 msk. dijon sinnep
» 1 msk. gróft sinnep
» salt og pipar

Aðferð

Afhýðið og skerið skalottlauka smátt. Setjið smjörið í pott, setjið laukinn út í og mýkið, án þess að brúna. Bætið fiskisoði út í ásamt piparkornum og lárviðarlaufum. Sjóðið vel niður, um allt að helming. Hellið rjóma út í og sjóðið aftur niður. Hrærið dijon sinnepi og grófu sinnepi út í og smakkið til með salti og pipar. Gott er að bera ofnbakaðar kartöflur fram með réttinum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar