Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Stórlúða með tómat, hvítlauk og sítrónu
- Hráefni
- » 1 kg stórlúða
- » olía til penslunar
- » 1 stk. sítróna
- » salt og pipar
- »
- » Meðlæti:
- » 4 stk. tómatar
- » 1 stk. sítróna
- » 4 stk. skalottlaukar
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 6 dl ólífuolía
- » 3 tsk. kóríanderfræ, úr kvörn
- » salt og svartur pipar
Aðferð
Skerið stórlúðuna í hæfilegar sneiðar og penslið með olíu. Grillið í um 5 mín. á hvorri hlið og kryddið með salti og pipar. Athugið að grilltíminn fer eftir stærð og þykkt lúðunnar. Setjið vel af tómat-laukmauki á diskana þegar þið berið lúðuna fram. Með réttinum er líka gott að bera fram ferskt salat og soðnar kartöflur eða rísottó.Meðlæti:
Sjóðið vatn í potti. Skerið kross í tómatana og setjið ofan í sjóðandi vatnið í 5–10 sek., og síðan beint í kalt vatn. Afhýðið tómatana, skerið í tvennt, fjarlægið kjarna og skerið síðan í litla teninga. Skerið aldinkjötið úr sítrónunni, ekki hafa hvíta lagið með, og skerið í báta. Afhýðið skalottlauk og hvítlauk og skerið smátt. Setjið tómata, sítrónubáta, skallottlauk og hvítlauk í lítinn pott. Bætið muldum kóríanderfræjum út í ásamt olíu. Hitið lítillega og kryddið síðan með salti og pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/636/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










