Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Smjörsósa „Beurre Blanc“
- Hráefni
- » 4 stk. skalottlaukar
- » 2 tsk. hvítvínsedik
- » 4 tsk. hvítvín
- » 1 dl rjómi
- » 500 g ósaltað smjör
- » salt og pipar
Aðferð
Afhýðið skalottlauka, skerið niður og setjið í pott með hvítvínsediki og hvítvíni. Sjóðið við vægan hita þar til þetta verður að sírópi. Bætið þá rjóma út í og sjóðið aðeins niður. Takið pottinn af hitanum. Hafið smjörið við stofuhita, í litlum teningum, og hrærið því saman við með písk, einum og einum bita í einu. Passið að blandan skilji sig ekki. Ef sósan kólnar á meðan verið er að elda skötuselinn má setja pottinn augnablik á eldavélarhellu, við vægan hita, og hræra stöðugt í á meðan.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/638/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










