Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Skötuselur á kryddjurtarísottói
- Hráefni
- » 1 kg skötuselur, roð- og beinlaus
- » ólífuolía
- » salt og pipar
Aðferð
Leggið skötuselinn í heilum bitum í olíu og kryddið með salti og pipar. Grillið í heilu lagi og skerið í sneiðar þegar skötuselurinn er borinn fram. Grilltíminn fer eftir stærð stykkjanna og því hversu heitt grillið er. Gott er að bera soðinn aspas fram með þessum rétti og jafnvel grillaðan lauk.Þessi uppskrift er notuð í Smjörsósa Beurre Blanc Kryddjurtarísottó,
Meðlæti
Smjörsósa Beurre Blanc
- Hráefni
- » 4 stk. skalottlaukar
- » 2 tsk. hvítvínsedik
- » 4 tsk. hvítvín
- » 1 dl rjómi
- » 500 g ósaltað smjör
- » salt og pipar
Aðferð
Afhýðið skalottlauka, skerið niður og setjið í pott með hvítvínsediki og hvítvíni. Sjóðið við vægan hita þar til þetta verður að sírópi. Bætið þá rjóma út í og sjóðið aðeins niður. Takið pottinn af hitanum. Hafið smjörið við stofuhita, í litlum teningum, og hrærið því saman við með písk, einum og einum bita í einu. Passið að blandan skilji sig ekki. Ef sósan kólnar á meðan verið er að elda skötuselinn má setja pottinn augnablik á eldavélarhellu, við vægan hita, og hræra stöðugt í á meðan.Kryddjurtarísottó
- Hráefni
- » 350 g „arborio“ hrísgrjón, t.d. frá Tilda
- » 1 lítri kjúklingasoð
- » 85 g smjör
- » 85 g parmesanostur
- » 3 dl hvítvín
- » 1 stk. laukur
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 15 stk. basilíkublöð
- » 1 msk. timjan, ekki á greininni
- » salt og pipar
Aðferð
Hitið kjúklingasoðið í potti. Afhýðið lauk og hvítlauk og skerið laukinn í litla bita. Rífið niður parmesanost. Bræðið smjör í öðrum potti og mýkið laukinn í smjörinu. Bætið hrísgrjónum út í þegar laukurinn er orðinn mjúkur og hrærið varlega í pottinum, í 3–4 mín. Varist að blandan brúnist. Hellið hvítvíni út í pottinn og sjóðið niður, þar til hvítvínið er gufað upp, hellið þá 1/4 hluta kjúklingasoðsins út í pottinn og sjóðið niður. Endurtakið þetta þar til soðið er uppurið. Takið hrísgrjónin, sem eiga að vera „al dente“, ekki fullsoðin, af hellunni og bætið parmesanosti saman við. Saxið basilíku og timjan smátt, hrærið saman við og kryddið að lokum með salti og pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/639/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










