Linsubaunir

Hráefni
» 120 g grænar linsubaunir
» 1 stk. rauðlaukur
» 3 stk. hvítlauksgeirar
» 2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía)
» 1 tsk. ferskt chilialdin
» 1 stk. rauð paprika
» vatn

Aðferð

Leggið linsubaunir í bleyti í eina klst. og skolið síðan undir rennandi vatni. Afhýðið rauðlauk og hvítlauk. Fræhreinsið papriku og chili og skerið niður ásamt rauðlauk og hvítlauk. Hitið olíu á pönnu og setjið allt grænmetið, nema paprikuna, á pönnuna og mýkið í um 2 mín. Bætið linsubaununum saman við og eldið í 2 mín. til viðbótar. Setjið því næst þrefalt rúmmál baunanna af vatni út á pönnuna og sjóðið í um 45 mín. eða þar baunirnar eru orðnar mjúkar. Setjið þá niðurskorna papriku saman við. Ef baunirnar hafa ekki drukkið í sig allt vatnið sigtið það frá. Berið linsubaunirnar fram með grillaða laxinum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar