Hagkaup
|
mbl
|
11. júlí
Lax og steinbítur með soja, engifer og chili
- Hráefni
- » Marinering
- » 2 dl „Mesquite smoked chili“ frá Hot Spot
- » 1/2 dl balsamedik
- » 4 dl jómfrúarolía (Extra Virgin ólífuolía)
- » 4 sm engiferrót
- » 1/2 dl sojasósa
- » 1 tsk. ferskt chilialdin
- »
- » 600 g steinbítsflök
- » 600 g laxaflök
- » 2 stk. rauðlaukar
- » 1 stk. rauð paprika
- » 1 stk. græn paprika
- » salt og pipar
- » grillpinnar
Aðferð
Setjið allt sem á að fara í marineringuna í matvinnsluvél og maukið.Roð- og beinhreinsið steinbíts- og laxaflökin. Skerið fiskinn í álíka stóra bita til að grillunin verði sem jöfnust. Afhýðið rauðlauka og skerið í bita á stærð við fiskbitana. Fræhreinsið rauða og græna papriku og skerið í bita af svipaðri stærð. Raðið fiski og grænmeti til skiptis á grillpinna og leggið í marineringu í um 30 mín. Grillið síðan í 3–4 mín. á hvorri hlið og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Ekki er nauðsynlegt að hafa annað meðlæti með þessum rétti en gott getur verið að bera hrísgrjón fram með og þá er hægt að minnka fiskmagnið.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/642/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










