Trjónukrabbasúpa

Hráefni
» 250 g krabbalappir
» 1/2 stk. laukur
» 5 stk. hvítlauksgeirar
» 2–3 msk. ólífuolía
» 2 dl hvítvín
» 1 1/2 lítri vatn
» 1 tsk. fiskikraftur
» 1 tsk. kjötkraftur
» smjörbolla (50 g smjörlíki og 50 g hveiti)
» 2 dl rjómi

Aðferð

Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið niður. Setjið krabbalappirnar í pott og ristið í olíu í 3 mín. Bætið þá lauk og hvítlauk út í og steikið áfram í 1–2 mín. Hellið hvítvíni og vatni út í ásamt fisk- og kjötkrafti og sjóðið áfram í 30–45 mín. Veiðið krabbalappirnar upp úr soðinu og kælið. Brjótið þær síðan með kjöthamri, takið fiskinn innan úr og notið í súpuna. þykkið soðið með smjörbollu, sjá leið-beiningar á bls. 24. Hellið rjómanum út í, skiptið krabbakjötinu á súpudiska og hellið súpunni yfir. Diskana má skreyta með framklóm trjónukrabbans.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar