Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Kúskeljasúpa
- Hráefni
- » 10 g rauðlaukur
- » 10 g paprika
- » 10 g sveppir
- » 2–3 msk. olía
- » 2 lítrar vatn
- » 1 dl hvítvín
- » 2 dl kúfiskssoð
- » 2 dl fiskisoð
- » kartöflumjöl eða smjörbolla
- » 200 g kúfiskur
- » 1 dl rjómi
- » salt
- » karrí
Aðferð
Afhýðið rauðlauk og saxið ásamt papriku og sveppum. Setjið olíu, rauðlauk, papriku og sveppi í pott og mýkið grænmetið í olíunni við vægan hita í 2 mín. Bætið vatni, hvítvíni, kúfisks- og fiskisoði út í og sjóðið í 45 mín. Sigtið soðið og þykkið síðan með kartöflumjöli sem hefur verið hrært út í köldu vatni eða með smjörbollu. Bætið kúfiski og rjóma út í súpupottinn. Smakkið súpuna til og bragðbætið ef með þarf, með salti, karríi og hvítvíni.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/646/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










