Humarsúpa Svenna

Hráefni
» 1 kg humarhalar í skel
» 1 stk. laukur
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 1 msk. smjör
» 1 msk. ólífuolía
» 1 msk. tómat.ykkni
» 1 tsk. madras karrí, milt
» 11/2 lítri vatn
» nokkur svört piparkorn
» 1 msk. kóríanderfræ
» 1/2 stk. sól.urrkað chilialdin
» 1 msk. grænmetiskraftur
» 1 msk. sítrónuolía
» 1/2 bolli koníak
» pipar
» 1 tsk. maldon salt
» 1/2 lítri rjómi
» 1 msk. ferskt timjan
» (garðablóðberg)

Aðferð

Skelflettið humarhalana. Afhýðið lauk og hvítlauk. Saxið laukinn og pressið hvítlaukinn. Hitið smjör og ólífuolíu í potti. Brúnið humarskelina í olíunni, bætið tómat.ykkni og karríi út í og brúnið vel. Hellið 1 1/2 lítra af vatni út í pottinn og látið suðuna koma upp. Fleytið froðuna ofan af og lækkið hitann. Bætið piparkornunum út í ásamt kóríanderfræjum og smátt söxuðu chili. Sjóðið við vægan hita í rúma klst. eða þar til soðið hefur rýrnað um rúman helming. Bætið grænmetiskrafti út í undir lokin, sigtið soðið og geymið.

Steikið humarhalana stutta stund í sítrónuolíu í potti. Hellið koníaki yfir og síðan soðinu. Kryddið með pipar og salti og látið suðuna koma upp. Hellið rúmum 1/4 lítra af rjóma út í pottinn en létt þeytið restina af rjómanum og setjið rjómatopp á hvern disk um leið og súpan er borin fram. Stráið að lokum fersku garðablóðbergi yfir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar