Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Austurlensk fiskisúpa
- Hráefni
- » 1 lítri fiskisoð
- » 2 tsk. „tom yum“ kryddmauk
- » 2 tsk. „tikka masala“ kryddmauk
- » 4 dósir kókosmjólk (400 ml dósir)
- » 1 tsk. grænmetiskraftur
- » 1/2 búnt kóríander
- » 3 msk. sæt chilisósa
- » salt og pipar
- » 200 g rauðsprettuflök
- » 200 g silungsflök
- » 200 g rækjur
- » 1/2 búnt vorlaukur
Aðferð
Setjið fiskisoðið til suðu, bætið „tom yum“ og „tikka masala“ kryddmauki, grænmetiskrafti, kókosmjólk og sætri chili-sósu út í. Saxið kóríander og bætið út í en skiljið eftir um 1 msk. til að strá yfir súpudiskana þegar súpan er borin fram. Skerið vorlaukana á ská í sneiðar og leggið til hliðar þar til síðar.Roð- og beinhreinsið rauðsprettu- og silungsflökin og skerið í litla bita. Sjóðið soðið í um 1 klst., smakkið og kryddið með salti og pipar ef með þarf. Setjið rauðsprettu, silung og vorlauk út í pottinn rétt áður en súpan er borin fram eða skiptið á diskanna og hellið svo sjóðandi súpu yfir. Stráið kóríander yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/648/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










