Köld agúrkusúpa með laxi

Hráefni
» 4 stk. stórar agúrkur
» 1 búnt minta
» 1/2 búnt kóríander
» 400 g reyktur lax
» 4 msk. hvítt balsamedik
» 1 stk. sítróna, safinn
» 2 msk. fiskisósa
» 4 dl hvítvín eða sódavatn
» 4 msk. svartur kavíar
» sesamsalt
» nýmalaður pipar

Aðferð

Skerið agúrkur í bita og setjið í matvinnsluvél með kóríander, mintu og 300 g af reykta laxinum og maukið. Athugið að fæstar matvinnsluvélar taka svona mikið magn svo yfirleitt þarf að mauka þetta í tvennu lagi. Setjið maukið í skál, bætið fiskisósu, balsamediki, hvítvíni og sítrónusafa saman við og blandið vel saman.

Skerið afganginn af laxinum í smá bita og bætið út í súpuna. Kryddið með nýmöluðum pipar. Ausið súpunni á diska, stráið sesamsalti yfir og setjið 1 matskeið af kavíar á hvern disk.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar