Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Laxaseyði
- Hráefni
- » Bein og haus af einum laxi
- » 1 stk. laukur
- » 1 stk. blaðlaukur
- » 1/2 stk. sellerírót
- » 3 stk. negulnaglar
- » 6 stk. piparkorn
- » 6 stk. kóríanderfræ
- » 4 stk. lárviðarlauf
- » 3 stönglar rósmarín
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 2 1/2 lítrar vatn
- » 300 g lax
- » 1/2 tsk. maldon salt
- » 1 tsk. grænmetiskraftur
- » 2 msk. ferskt rósmarín
- » 3 dl hvítvín
- » 2 tsk. sítrónusafi
- » 6 stk. „shiitake“ sveppir
- » 1 búnt vorlaukur
- » 2 cm engiferrót
Aðferð
Afhýðið lauk og skerið niður ásamt blaðlauk og sellerírót. Skolið laxabeinin og hausinn og sjóðið í potti, í 2 1/2 l af vatni, með lauk, blaðlauk og sellerírót. Látið suð-una koma upp og fleytið froðuna sem myndast ofan af. Bætið negulnöglum, piparkornum, kóríanderfræjum og lárviðarlaufum út í.Hreinsið rósmarínnálarnar af stönglinum og geymið þar til síðar. Setjið stöngulinn og hvítlaukinn út í pottinn og sjóðið í um 1 klst. við vægan hita. Sigtið soðið í fíngerðu sigti. Skerið laxinn í litla bita, sneiðið „shiitake“-sveppi og vorlauka og rífið niður engiferrót. Setjið soðið aftur til suðu, saxið rósmarínnálarnar og bætið helmingi þeirra út í. Kryddið með salti og grænmetiskrafti og látið suðuna koma upp.
Hellið hvítvíni og sítrónusafa út í og sjóðið í nokkrar mín. Smakkið súpuna og saltið ef þurfa þykir. Bætið sveppum, engifer og laxi í súpuna. Stráið vorlauk og afganginum af rósmaríni yfir um leið og súpan er borin fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/650/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










