Undirstöðusúpa

Hráefni
» 4–6 stk. plómutómatar, vel þroskaðir
» 1–2 stk. laukar
» 1–2 stk. gulrætur
» 1/2 stk. sellerístöngull
» 2 msk. ólífuolía
» 1 tsk. sykur
» tvöfaldur brandí eða koníak
» 2 dl hvítvín
» hnífsoddur saffran
» 1 lítri fiski- eða kjúklingasoð
» sjávarsalt og svartur pipar úr kvörn

Aðferð

Skerið kross örþunnt ofan á tómatana. Setjið þá ofan í bullsjóðandi vatn í 1 mínútu, takið upp úr og snöggkælið í ísköldu vatni. Gott er að setja ísmola út í vatnið, þá á skinnið að losna auðveldlega af. Flysjið tómatana. Setjið tómatana í matvinnsluvél og hakkið gróft, með því að láta vélina vera í gangi stutta stund. Afhýðið lauk og saxið fínt ásamt gulrót og sellerístöngli. Látið ólífuolíuna í víðan, djúpan pott og létt steikið lauk, gulrót og sellerí við vægan hita ásamt sykri. Hrærið stöðugt í með sleif, í um 10 mín. Grænmetið á að taka gullinbrúnan lit og „karamellast“ en varist að láta það brenna við. Skvettið brandíi yfir og kveikið í. Slökkvið bálið með því að hella hvítvíni út í pottinn. Bætið hökkuðum tómötum og saffrani saman við ásamt soðinu og sjóðið við vægan hita í 10–15 mín. Kryddið með salti og pipar og þá er undirstöðusúpan tilbúin. Hana er hægt að gera með góðum fyrirvara.

Hitið undirstöðusúpuna að suðumarki. Látið allan fiskinn út í, setjið lok á pottinn og hafið á hitanum í nokkrar mín. eða þar til súpan og fiskurinn er orðið sjóðheitt. Hellið þá krydduðu ólífuolíunni út í pottinn og hrærið tvo til þrjá hringi með sleif, ofur varlega svo að fiskurinn fari ekki í sundur. Berið súpuna fram í fallegum potti eða súputarínu, með nýbökuðu brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar