Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Grunnsoð
- Hráefni
- » beinagarður og afskurður af laxinum
- » 1–2 stk. gulrætur
- » 2 stk. græn epli
- » 1/2 stk. blaðlaukur
- » 3 stk. sellerístilkar
- » 1/2–1 stk. paprika
- » 1/3 tsk. timjan
- » 3–4 stk. lárviðarlauf
- » 1 tsk. paprikuduft
- » 1 tsk. milt karrí
- » 3 dl hvítvín
- » 2 lítrar kjúklinga- eða fiskisoð
- » 1–2 msk. smjör
Aðferð
Skerið beinin og afskurðinn í bita. Skerið grænmeti og epli í grófa bita. Bræðið smjör í stórum potti og látið bein, epli og grænmeti krauma þar, ásamt kryddinu. Hellið hvítvíni yfir og síðan soði. Sjóðið við vægan hita í 30 mín. og látið síðan bíða í aðrar 30 mín. Veiðið bein og grænmeti upp úr pottinum með fiskispaða. Sigtið soðið tvisvar, fyrst í gegnum gróft sigti, síðan í gegnum mjög fínt sigti. Setjið soðið aftur yfir til suðu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/655/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










