Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Austurlensk fiskisúpa með kókos og kóríander
- Hráefni
- » 200 g steinbítur
- » 200 g lúða
- » 200 g risarækja
- » 200 g kræklingur
- » 2,5 cm „mini“ engiferrót (Laos) eða 1,25 cm engiferrót
- » 1,5 lítri kókosmjólk
- » 2 stk. chilialdin
- » 1 búnt kóríander
- » 2–3 stk. sítrónugrasstiklar eða smá lime-börkur
- » 2 msk. fiskisósa
- » 5 stk. vorlaukar
- » 1 stk. lime
Aðferð
Roð- og beinhreinsið steinbít og lúðu. Skerið hvort tveggja í bita en hafið risarækjurnar heilar. Afhýðið engifer og skerið í sneiðar. Setjið steinbít, lúðu, rækjur, krækling, kókósmjólk, engifer, chili, kóríander og sítrónugras í pott og sjóðið við vægan hita í um 5 mín.Hreinsið vorlauk, skerið í litla bita og setjið út í ásamt fiskisósu og limesafa. Látið súpuna bíða í um 5 mín. áður en hún er borin fram. Uppskriftina má tvöfalda og bera súpuna fram sem aðalrétt. Uppskriftin miðast við sex manns.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/657/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










