Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Tær fiskisúpa „bouillabaisse“
- Hráefni
- » 500 g humarhalar í skel
- » 250 g surimi (krabbalíki)
- » 500 g risahörpudiskur
- » 500 g kræklingur
- » 250 g úthafsrækja
- » 500 g steinbítur
- » 1/4 tsk. saffran
- » 4 stk. ferskir tómatar
- » 250 g niðursoðnir maukaðir tómatar
- » 3 stk. skalottlaukar
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 1/4 búnt steinselja
- » 1/4 stk. grænt chilialdin
- » 400 ml hvítvín
- » 800 ml vatn
- » salt og pipar
- » ólífuolía til steikingar
Fyrir 6
Aðferð
Uppskriftin miðast við sex manns.Snyrtið fiskinn og gerið kláran fyrir matreiðsluna. Afhýðið og saxið skalottlauk og hvítlauk og mýkið í olíu í stórum potti, án þess að brúna. Bætið maukuðu tómötunum saman við saxaðan lauk og hvítlauk. Stráið saffrani út í tómat- og laukmaukið og bætið helmingnum af hvítvíninu og vatninu saman við. Setjið chili saman við maukið og kryddið með salti og pipar. Bætið fisktegundunum út í pottinn. Setjið þá tegund sem þarf lengstu eldunina fyrst. Bætið afganginum af hvítvíninu og vatninu saman við og látið suðuna koma hægt og rólega upp. Saxið steinselju og setjið út í rétt áður en fiskisúpan er borin fram.
Berið súpuna fram með snittubrauði og spænskri hvítlaukssósu, aïoli.
Þessi uppskrift er notuð í Aïoli
Meðlæti
Aïoli
- Hráefni
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 stk. eggjarauða
- » 21/2 dl ólífuolía
- » 2 msk. gouda- eða parmesanostur
- » 1/2 tsk. dijon sinnep
- » salt og nýmalaður pipar
Aðferð
Rífið niður ostinn. Hrærið ólífuolíu smátt og smátt út í eggjarauðu. Afhýðið og saxið hvítlaukinn smátt og setjið saman við ásamt sinnepi, salti og nýmöluðum pipar. Hrærið að lokum niðurrifna ostinum saman við.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/659/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










