Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Kampavínsbætt sjávarréttasúpa með saffrani
- Hráefni
- » 100 g lax
- » 100 g skötuselur
- » 200 g kræklingur
- » 200 g humarhalar
- » 1/2 flaska þurrt kampavín
- » 1 lítri vatn
- » 1 askja sjávarréttaostur, 250 g
- » 2 stk. laukar
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 12 þræðir saffran
- » 2 tsk. karrí
- » 1 dós niðursoðnir tómatar (Stewed tomatoes)
- » 1 msk. kjúklingakraftur
- » 1 msk. fiskikraftur
- » 2 tsk. „Dijon Provançe“ sinnep
- » 2 1/2 msk. appelsínumarmelaði
- » ólífuolía
- » sjávarsalt og pipar
Fyrir 6
Aðferð
Uppskriftin miðast við sex manns.Afhýðið lauk og hvítlauk, saxið og setjið í stóran pott ásamt ólífuolíu. Mýkið laukinn og bætið kampavíni og saffrani út í. Sjóðið niður um helming. Bætið niðursoðnum tómötum út í pottinn ásamt vatni. Setjið kjúklinga- og fiskikraft, krydd, sinnep, appelsínumarmelað i og sjávarréttaost saman við.
Sjóðið í um 10 mín. og bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita og setjið út í pottinn, fyrst þær tegundir sem þurfa lengri eldunartíma. Látið suð-una koma upp. Bætið að lokum um 2 msk. af ólífuolíu saman við súpuna, skömmu áður en hún er borin fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/660/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










