Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Saltfiskbollur
- Hráefni
- » 500 g saltfiskur, útvatnaður
- » 200 g þorskflak
- » 60 g laukur
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 tsk. paprikuduft
- » 1 tsk. pipar
- » 160 g hveiti
- » salt
- » djúpsteikingarolía
Aðferð
Afhýðið lauk og hvítlauksgeira. Roð-og beinhreinsið saltfisk og þorsk. Hakkið saltfisk, þorsk, lauk og hvítlauk og setjið síðan í hrærivélaskál ásamt paprikudufti og pipar og hrærið saman.Bætið vatnsdeiginu saman við það sem er í hrærivélaskálinni, og síðan hveitinu. Saltið ef með þarf. Mótið bollur með skeið og djúpsteikið í olíu. Berið saltfiskbollurnar fram með súrsætri sósu og hrísgrjónum.
Þessi uppskrift er notuð í Vatnsdeig
Meðlæti
Vatnsdeig
- Hráefni
- » 1 dl vatn
- » 50 g smjörlíki
- » 50 g hveiti
- » 2 stk. egg
Aðferð
Sjóðið vatn og smjörlíki saman í potti, þangað til smjörlíkið er bráðnað. Bætið hveitinu út í og hrærið stöðug í með sleif þar til deigið sleppir pottinum. Takið pottinn af hitanum og hrærið eggjunum saman við, einu í einu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/662/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










