Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Hleypt lúða
- Hráefni
- » 1 kg lúða
- » 12 blöð matarlím
- » 300 g sýrður rjómi
- » salt og pipar
- » 4 stk. eggjahvítur
- » 1/2 dl fiskisoð eða hvítvín
- » plastfilma
Aðferð
Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn í 5 mín. Hreinsið lúðuna og maukið hana hráa í matvinnsluvél ásamt sýrða rjómanum. Kryddið með salti og pipar. Bætið eggjahvítum saman við og hrærið í um 20 sek. til viðbótar. Hitið fiskisoð eða hvítvín í potti. Kreistið vætuna úr matarlíminu, leysið það upp í soðinu og blandið síðan saman við lúðufarsið. þekið eins kílóa form með plastfilmu, setjið farsið í formið og látið stífna í ísskáp yfir nótt.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/664/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










