Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Saltfiskfars
- Hráefni
- » 500 g saltfiskur, roðlaus og beinlaus
- » 150 g kartöflur
- » 1 stk. laukur
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » mjólk
- » svartur pipar
- » smjörklípa
Aðferð
Hafið saltfiskinn vel útvatnaðan. Afhýðið kartöflur, lauk og hvítlauk. Saxið lauk og hvítlauk. Setjið saltfisk, kartöflur, lauk og hvítlauk í pott og hellið mjólk út í pottinn, þangað til rétt flýtur yfir. Sjóðið við vægan hita þar til kartöflurnar og fiskurinn eru soðin. Sigtið mjólkina frá og geymið.Maukið fisk, lauk, hvítlauk og kartöflur í matvinnsluvél ásamt smávegis af mjólkinni. Ef maukið er of þykkt bætið þá meiri mjólk út í. Áferðin á að vera eins og þykkur plokkfiskur. Kryddið með grófmöluðum svörtum pipar og hrærið smjörklípu saman við.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/667/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










