Steiktar rækjur á saltfiskköku með hvítvínskavíarsósu

Hráefni
» 16 stk. heilar rækjur
» salt

Aðferð

Pillið rækjurnar en látið halann vera á þeim. Snöggsteikið rækjurnar á vel heitri pönnu og saltið. Varist að ofelda.

Mótið saltfiskfarsið í fjórar jafnstórar kökur og steikið þær í 1–2 mín. á hvorri hlið. Raðið saltfiskkökunum á fat eða diska, setjið rækjur ofan á og berið síðan fram með sósunni og salati.

Þessi uppskrift er notuð í Hvítvínskavíarsósa Saltfiskfars,

Meðlæti

Hvítvínskavíarsósa

Hráefni
» 1/2 stk. laukur
» 4 dl hvítvín
» 2 dl rjómi
» 200 g smjör við stofuhita
» 1 msk. rauður kavíar

Aðferð

Afhýðið lauk og saxið. Setjið laukinn í pott og mýkið í smá smjöri. Hellið hvítvíni út í pottinn og sjóðið niður um helming. Hellið rjómanum út í og sjóðið við vægan hita þar til sósan byrjar að þykkna. Takið pottinn af hitanum og pískið smjöri saman við. Setjið kavíarinn út í sósuna um leið og hún er borin fram.

Saltfiskfars

Hráefni
» 500 g saltfiskur, roðlaus og beinlaus
» 150 g kartöflur
» 1 stk. laukur
» 4 stk. hvítlauksgeirar
» mjólk
» svartur pipar
» smjörklípa

Aðferð

Hafið saltfiskinn vel útvatnaðan. Afhýðið kartöflur, lauk og hvítlauk. Saxið lauk og hvítlauk. Setjið saltfisk, kartöflur, lauk og hvítlauk í pott og hellið mjólk út í pottinn, þangað til rétt flýtur yfir. Sjóðið við vægan hita þar til kartöflurnar og fiskurinn eru soðin. Sigtið mjólkina frá og geymið.

Maukið fisk, lauk, hvítlauk og kartöflur í matvinnsluvél ásamt smávegis af mjólkinni. Ef maukið er of þykkt bætið þá meiri mjólk út í. Áferðin á að vera eins og þykkur plokkfiskur. Kryddið með grófmöluðum svörtum pipar og hrærið smjörklípu saman við.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar