Steinbíts-reyklaxapaté

Hráefni
» 1 kg steinbítsflök
» 1 stk. sítróna, börkurinn
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 1 stk. laukur
» 2 tsk. grænmetiskraftur
» 1 tsk. salt
» pipar
» 400 g reyktur lax
» 1 msk. dijon sinnep
» 2 sm engiferrót
» 20 stk. basilíkublöð
» 30 stk. spínatblöð
» 1 msk. basilíkuolía
» 4 stk. eggjahvítur

Aðferð

Roð- og beinhreinsið steinbítsflökin, maukið mjög vel í matvinnsluvél og setjið í skál. Rífið sítrónubörkinn með rifjárni. Afhýðið hvítlauk og lauk, maukið mjög vel í matvinnsluvél og setjið með maukaða fiskinum. Bætið grænmetiskrafti saman við og kryddið með salti og pipar. Leggið til hliðar og geymið.

Saxið engiferrótina mjög fínt. Maukið reykta laxinn í matvinnsluvél og bætið sinnepi og söxuðum engifer saman við. Setjið í skál og leggið til hliðar.

Sjóðið vatn í potti, um 2 dl, og setjið spínat og basilíkublöð út í vatnið þegar suðan er komin upp. Takið strax upp úr pottinum, snöggkælið og maukið í matvinnsluvél ásamt basilíkuolíu. Stífþeytið eggjahvíturnar, setjið 3 msk. í laxamaukið, restina í steinbítsmaukið og blandið varlega saman við með sleikju.

Skiptið steinbítsmaukinu í tvennt og setjið í sitt hvora skálina. Blandið spínat-basilíkumaukinu saman við helminginn af steinbítsmaukinu og rifna sítrónuberkinum saman við hinn helminginn. Takið formkökumót og smyrjið með olíu, setjið síðan græna maukið á botninn, laxamaukið þar ofan á og endið á því hvíta.

Hitið ofninn í 200°C og lækkið síðan hitann niður í 150°C þegar formið er komið í ofninn. Setjið vatn í ofnskúffu og formið þar í. Bakið í vatnsbaðinu í um 40 mín., og hafið álpappír yfir forminu. Berið fram með saffran-basilíkudressingu og t.d. ristuðu brauði eða grænu salati.

Þessi uppskrift er notuð í Saffran-basilíkudressing

Meðlæti

Saffran-basilíkudressing

Hráefni
» 10 stk. basilíkublöð
» 4 msk. sítrónuolía
» 1 msk. hvítt balsamedik
» 1 msk. sítrónusafi
» salt og nýmalaður pipar
» örlítið saffran

Aðferð

Saxið basilíkublöðin gróft og blandið saman við sítrónuolíuna. Bætið balsamediki og sítrónusafa saman við. Kryddið með salti og pipar, stráið saffrani yfir og hrærið vel saman.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar