Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Sósa:
- Hráefni
- » 3 msk. teriyaki sósa
- » 1 msk. sæt chilisósa
- » 1 msk. sesamolía
- » 1 msk. ferskt kóríander
- » 1 msk. sesamfræ
Aðferð
Saxið kóríander og blandið síðan öllu sem upp er talið vel saman.Þessi uppskrift er notuð í Austurlenskar fiskkökur
Meðlæti
Austurlenskar fiskkökur
- Hráefni
- » 500 g ýsu- eða þorskflök
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 1 tsk. fiskisósa
- » 2 tsk. „tom yum“-kryddmauk
- » 3 msk. teriyaki
- » 1 tsk. sesamfræ
- » 1 msk. sesamolía
- » 3 msk. ferskt kóríander
- » 1/2 stk. rautt chilialdin
- » 1/2 bolli hveiti
- » salt
- » 100 g strengjabaunir
- » 1 stk. vorlaukur
- » 2–3 msk. olía
Aðferð
Setjið fiskflökin í matvinnsluvél og maukið. Afhýðið hvítlauk og bætið honum ásamt fiskisósu, „tom yum“-kryddmauki, teriyaki, sesamfæjum og sesamolíu út í. Maukið vel. Saxið kóríander og chilialdin smátt, bætið saman við maukið og hrærið svo hveiti og smá salti saman við. Skerið strengjabaunir og vorlauk mjög smátt og bætið út í farsið. Mótið farsið í bollur og steikið í olíu á pönnu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/673/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









