„Brandada“, gratíneraður plokksaltfiskur

Hráefni
» 200 g soðinn saltfiskur
» 100 g soðnar kartöflur
» 5–8 stk. hvítlauksgeirar
» 1 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
» 1 dl mjólk, eða mjólk og rjómi til helminga
» salt og svartur pipar úr kvörn
» 2 msk. söxuð steinselja
» 1 stk. egg
» 4 msk. ostur

Fyrir 2

Aðferð

Myljið soðna saltfiskinn fínt niður með höndunum. Maukið soðnar kartöflur með gaffli eða þar til gerðu kartöflumúsarpressujárni. Afhýðið og saxið hvítlauk. Látið ólífuolíuna í pott við vægan hita og létt steikið hvítlaukinn, án þess að hann taki lit. Hellið mjólk út í pottinn og hitið að suðumarki. Bætið maukuðum kartöflum út í og meiri mjólk ef með þarf.

Hrærið saman með sleif og látið soðna saltfiskinn út í. Hrærið þessu vel saman og bætið steinselju, salti og vel af svörtum pipar ásamt einu eggi saman við. Setjið plokksaltfiskinn í smurt eldfast mót þegar hann er orðinn vel samblandaður og stráið nýrifnum osti yfir.

Bakið plokksaltfiskinn í ofni við um 170°C þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn. Berið fram með stökku salati..essi réttur er hefðbundin frá Suður-Frakklandi og í hann er yfirleitt alltaf notaður saltaður fiskur. þennan rétt er gott að nota sem hluta af einföldu hlaðborði í hádegi eða í „brunch“.

Uppskriftin miðast við tvo.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar