Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Kalt innbakað karríkryddað fiskfars með rækjum
- Hráefni
- » 800 g ýsu- eða þorskflök
- » 2 sneiðar franskbrauð
- » 2 stk. egg
- » 1 dl mjólk
- » 1 stk. laukur
- » 1/3 stk. rauð paprika
- » 1/4 stk. blaðlaukur, græni hlutinn
- » 2 tsk. karrí
- » 1 tsk. paprikuduft
- » 1 msk. maizenamjöl eða kartöflumjöl
- » salt og pipar
- » 200 g rækjur
- » 4 arkir smjördeig um 30 x 15 sm
- » 1 stk. egg
- » smá mjólk til penslunar
Aðferð
Roð- og beinhreinsið ýsu- eða þorskflök. Afhýðið lauk og skerið í grófa bita. Skerið paprikuna í grófa bita og græna hluta blaðlauksins. Látið allt nema rækjurnar í matvinnsluvél og keyrið saman í vel blandað fars. Takið úr matvinnsluvélinni og látið í skál. Látið renna vel af rækjunum og bætið þeim út í. Hrærið saman með sleif.Látið vel af farsinu á endilangt smjördeigið og rúllið því utan um. þeytið saman egg og smá mjólk. Límið kantana saman með fingrunum og penslið „smjördeigspylsuna“ með eggjahrærunni. Stingið göt með gaffli, með jöfnu millibili, ofan á rúlluna og bakið í ofni við 200°C í 20 mín. eða þar til að smjördeigið er orðið fallega brúnt og bakað. Kælið og skerið í sneiðar. Berið fram á fati með salati sem rétt á veisluborði. Hentar líka mjög vel sem fingrafæði í partí.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/675/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









