Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
Falskar krabbakökur úr humri og hörpudiski
- Hráefni
- » 200 g hörpudiskur
- » 200 g humarhalar, skelflettir
- » 200 g surimi (krabbalíki)
- » 1 stk. egg
- » 1 dl majónes
- » 1 msk. dijon sinnep
- » 1/3–1/2 stk. rautt chilialdin
- » lítið búnt steinselja
- » 1–2 stk. hvítlauksgeirar
- » gróft sjávarsalt
- » svartur pipar úr kvörn
- » 12–15 stk. saltkexkökur, t.d. frá Ritz
Aðferð
Látið hörpudisk og humar í pott með léttsöltu sjóðandi vatni. Sjóðið í um 11/2 mín. Takið upp úr og kælið. Saxið hörpudisk, humar og surimi, eða rífið gróft niður. Látið í skál og geymið þar til síðar.Afhýðið hvítlauk og fræhreinsið chilialdin. Saxið hvítlauk og chili fínt ásamt steinselju. Hrærið saman við majónes, egg og sinnep. Saltið og piprið vel.
Myljið saltkexið út í sósuna. Hrærið saman og setjið skelfiskinn saman við. Látið smjörpappír í ofnskúffu. Mótið 12 jafnstórar bollur með skeið og lófa og látið á smjörpappírinn. Setjið í kæli í um 1 klst. þetta má útbúa með góðum fyrirvara.
Hitið ofninn í 180°C og bakið í 16–18 mín. eða þar til kökurnar hafa fengið skorpu og bakað yfirborð. Takið krabbakökurnar með spaða úr ofnskúffunni og látið á diska ásamt salati og chili-sinnepsmajónesi.
Þessi uppskrift er notuð í Chili-sinnepsmajónes:
Meðlæti
Chili-sinnepsmajónes:
- Hráefni
- » 3 msk. chilisósa t.d. frá Thai Choice
- » 3 msk. dijon sinnep
- » 6 msk. majónes
- » 1 stk. sítróna, safinn
- » 1 tsk. hlynsíróp
Aðferð
Hrærið öllu sem fara á í sósuna saman og berið fram með krabbakökunum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/677/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









