Laxa- og spínat-„terrine“ með rúkólapestói

Hráefni
» 700 g laxaflök
» 3 msk. skalottlaukur
» 1 msk. smjör
» 1/2 bolli Noilly Prat (þurr vermút)
» 4 dropar tabascosósa
» 1 stk. egg
» 1 tsk. salt
» 1/4 tsk. hvítur pipar, nýmalaður
» 375 ml rjómi
» 250 g fersk spínatblöð

Aðferð

Afhýðið og saxið skalottlauk mjög fínt. Bræðið smjörið í potti og mýkið laukinn, án þess að brúna. Bætið vermút út í og sjóðið niður. Roð- og beinhreinsið laxaflökin, setjið í matvinnsluvél og maukið fínt. Setjið laukmaukið, tabascosósu, egg, salt og pipar í matvinnsluvélina með laxinum. Hafið vélina í gangi og hellið rjómanum rólega út í og maukið þar til þetta verður silkimjúkt.

Takið spínatblöðin af stilkunum. þyngd spínatblaðanna, án stilka, á að vera 250 g. Setjið spínatblöðin ofan í sjóðandi vatn í um 40 sek. og svo beint í kalt vatn. þerrið spínatblöðin. Skiljið helming laxablöndunnar eftir í matvinnsluvélinni, setjið spínatið saman við og maukið vel. Forhitið bakarofn í 150°C. Smyrjið „terrine“-form eða formkökuform með olíu. Setjið helminginn af laxamaukinu í formið og gerið rauf, langsum í maukið. Setjið spínatmaukið í raufina og síðan restina af laxamaukinu yfir. Smyrjið olíu á bökunarpappír og setjið yfir formið svo farsið þorni ekki. Setjið formið í ofnskúffu og hellið vatni í skúffuna, um 2 sm upp á formið. Setjið kjöthitamæli í farsið og bakið í ofni í um 50 mín. eða þar til mælirinn sýnir kjarnhita 60°C.

Þessi uppskrift er notuð í Rúkólapestó:

Meðlæti

Rúkólapestó:

Hráefni
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 60 g furuhnetur
» 1 bolli fersk basilíka
» 1 bolli rúkólasalat
» 5 msk. parmesanostur
» 1/2 bolli ólífuolía
» salt og svartur pipar

Aðferð

Afhýðið hvítlauk. Létt ristið furuhneturnar á þurri pönnu og setjið þær síðan í matvinnsluvél með basilíku, rúkólasalati, hvítlauk, og parmesanosti. Hellið ólífuolíu út í og maukið vel. Kryddið með salti og pipar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar