Hagkaup
|
mbl
|
18. júlí
„Thai“ fiskbollur með chilisósu
- Hráefni
- » 300 g fiskhakk
- » 200 surimi (krabbalíki)
- » 100 g laxaflak
- » 100 g græn paprika
- » 1 dl mjólk
- » 1 tsk. sesamolía
- » 1 msk. madras karrí
- » 1 tsk. chiliduft
- » 1 tsk. salt
- » 3 dl kartöflumjöl
- » 2–3 msk. ólífuolía
Aðferð
Hakkið surimi og lax og blandið saman við fiskhakkið. Fínsaxið papriku og blandið henni saman við ásamt mjólk og sesamolíu. Kryddið með karríi, chilidufti og salti. Hrærið vel saman. Bætið kartöflumjöli saman við og hrærið þar til komið er gott deig. Mótið bollur og fletjið síðan út þannig að úr verði falleg buff. Steikið buffin í ólífuolíu á pönnu, í 2–3 mín. á hvorri hlið.Þessi uppskrift er notuð í Chillisósa
Meðlæti
Chillisósa
- Hráefni
- » 1 dl chilisósa
- » 1 dl sýrður rjómi
- » 1 dl majónes
- » 1 dl hrein jógúrt
- » 1 msk. sultaður engifer
- » 1 tsk. chiliduft
- » 1 msk. hunang
- » 1/2 tsk. salt
Aðferð
Blandið saman chilisósu, sýrðum rjóma, majónesi og jógúrt. Fínsaxið engifer og bætið út í sósuna ásamt chilidufti, hunangi og salti. Berið fiskbollurnar og chilisósuna fram með kús kús og fersku salati.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/681/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










