Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Saltfiskspizza
- Hráefni
- » 400 g saltfiskur, útvatnaður
- » 2 stk. laukar
- » 5 stk. hvítlauksgeirar
- » 3 dl pizzasósa
- » 300 g ostur
- » 3 dl sætt sinnep
Aðferð
Á meðan deigið er að lyfta sér skerið þið saltfiskinn í strimla, afhýðið lauk og hvítlauk og saxið. Fletjið deigið út og smyrjið pizzasósunni á botninn. Stráið helmingnum af ostinum, hvítlauk og lauk yfir. Raðið því næst saltfiskstrimlum á pizzuna, sprautið sætu sinnepi jafnt yfir og dreifið að lokum restinni af ostinum yfir. Bakið pizzuna í 15–20 mín. við 200°C.Þessi uppskrift er notuð í Pizzadeig
Meðlæti
Pizzadeig
- Hráefni
- » 1 tsk. perluger
- » 1 tsk. sykur
- » 1 bolli volgt vatn
- » 3 bollar hveiti
- » 1 tsk. salt
- » 1 msk. ólífuolía
Aðferð
Setjið perluger í litla skál ásamt sykri og 1/4 bolla af fingurvolgu vatni og leysið gerið upp. Setjið hveiti á borð, gerið holu í miðjuna og hellið perlugersvökvanum í holuna ásamt salti og olíu. Hnoðið saman og bætið restinni af vatninu útí eftir þörfum. Setjið deigið í skál, breiðið rakan klút yfir og látið hefast þar til stærð þess hefur tvöfaldast.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/685/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









