Saltfiskur með rauðlauk og kapers

Hráefni
» 800 g saltfiskur
» 2 stk. rauðlaukar
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» steinselja
» ólífuolía
» 4 msk. kapers
» 1 dl hvítvín
» 3 dl fiskisoð
» 50 g smjör

Aðferð

Afhýðið rauðlauka og skerið í strimla. Afhýðið hvítlauk og saxið smátt ásamt steinselju. Hafið saltfiskinn vel útvatnaðan og með roði. Skerið fiskinn í fjögur 200 g stykki og steikið í olíu á pönnu, með roðhlið-ina upp, í 2–3 mín. eftir þykkt. Snúið fiskstykkjunum við og steikið í 1–2 mín. í á hinni hliðinni. Mýkið lauk og hvítlauk í olíu, án þess að brúna og bætið síðan kapers, hvítvíni og fiskisoði út í. Látið suð-una koma upp og sjóðið stutta stund. Jafnið sósuna með smjöri og bætið steinseljunni út í.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar