Saltfiskssalat með perudressingu

Hráefni
» 400 g saltfiskhnakki
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 1 msk. ólífuolía
» 2 msk. tahini (mauk úr sesam-fræjum)
» 80 g parmesanostur
» 1 tsk. sól.urrkað chilialdin
» 2 msk. hveiti
» 1 tsk. sesamfræ
» 1 msk. kóríander
» 2–3 msk. olía

Aðferð

Skerið saltfiskinn í þunnar sneiðar. Afhýðið og pressið hvítlauk og blandið saman við olíuna og tahini. Blandið varlega saman og geymið.

Rífið parmesanostinn gróft, setjið á bökunarpappír og bakið við 200°C í um 5 mín. eða þar til hann er orðinn að ljósbrúnni köku. Takið út úr ofninum og kælið.

Afhýðið peruna og skerið í bita. Setjið peruna í matvinnsluvél með hvítu balsamediki og sesamolíu og maukið vel. Hreinsið salatið og rífið gróft ef þið kaupið það óskorið. Setjið salatið á fat. Skerið kirsuberjatómata og þistilhjörtu í fernt og raðið á salatið. Veltið saltfiskbitunum upp úr hveiti og steikið á heitri pönnu í ólífuolíu. Raðið saltfiskinum á salatið. Brjótið „ostakökuna“ í bita og stingið inn á milli. Dreifið dressingunni yfir, jafnvel áður en fiskurinn er settur á salatið. Saxið kóríander og dreifið yfir ásamt sól-þurrkuðu chili og sesamfræjum.

Þessi uppskrift er notuð í Peru salatdressing

Meðlæti

Peru salatdressing

Hráefni
» 1 stk. pera
» 1 msk. hvítt balsamedik
» 1 msk. sesamolía
» 1 poki blandað salat
» 4 stk. niðursoðin þistilhjörtu
» 8 stk. kirsuberjatómatar

Aðferð




Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar