Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Saltfisksstappa
- Hráefni
- » 1 kg saltfiskur, útvatnaður
- » 500 g kartöflur
- » 250 g laukur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 200 g smjör
- » 2 msk. basilíkuolía
Aðferð
Setjið vatn í pott. Afhýðið kartöflur, skerið í teninga og sjóðið. Bætið saltfiski út í eftir að kartöflurnar hafa soðið í 10 mín. Afhýðið lauk og hvítlauk. Skerið laukinn miðlungsgróft og sneiðið hvítlaukinn gróft. Bræðið smjör á pönnu og steikið laukana í því, passið að hafa ekki of háan hita því best er að mýkja laukana í kraumandi smjörinu, ekki brúna. Sjóðið kartöflurnar og saltfiskinn saman í 10 mín. og sigtið síðan vatnið frá. Blandið lauknum útí og setjið andartak í matvinnsluvél svo að stappan verði ekki seig. það er líka hægt að setja bara laukinn í matvinnsluvél, stappa fiskinn og blanda svo saman. Hellið að lokum baslíkuolíunni yfir og blandið. Saltfiskstöppuna er hægt að borða strax, baka í eldföstu móti með osti yfir eða setja á milli steiktra kartafla eins og lýst er hér við hliðina.Þessi uppskrift er notuð í Steiktar kartöflur
Meðlæti
Steiktar kartöflur
- Hráefni
- » 2 stk. stórar bökunarkartöflur
- » maldon salt
- » hvítlauksolía til steikingar
- » garðblóðberg (timjan)
Aðferð
Afhýðið kartöflurnar og skerið í mjög þunnar sneiðar, þerrið og steikið síðan á báðum hliðum í hvítlauksolíu. þegar kartöflurnar eru tilbúnar stráið þið smávegis af salti og blóðbergi yfir og berið fram með saltfiskstöppunni.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/692/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










