Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Bakaður saltfiskur
- Hráefni
- » 1 kg saltfiskhnakkar, útvatnaðir
- » 2 msk. furuhnetur
- » 2 msk. japanskt brauðrasp (panko)
- » 2 stk. stórir laukar
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 msk. ólífuolía
- » pipar
- » 2 msk. ferskt timjan
- » 1 stk. rauð paprika
- » 200 g niðursoðin þistilhjörtu
- » 4 msk. rifinn parmesanostur
- » 8 stk. kirsuberjatómatar
- » 20 stk. stórar grænar ólífur
- » 2 msk. ferskt oregano
- » 2–3 msk. ólífuolía
Aðferð
Myljið furuhneturnar og blandið þeim saman við japanska brauðraspið. Veltið saltfiskinum upp úr blöndunni og steikið augnablik í olíu á vel heitri pönnu. Setjið fiskinn í smurt eldfast mót.Afhýðið lauk og hvítlauk. Skerið hvítlaukinn gróft út í ólífuolíuna, hellið helmingnum yfir saltfiskinn, stráið pipar og timjani yfir. Skerið paprikuna í fernt eftir endilöngu, fræhreinsið, setjið í eldfasta mótið með saltfiskinum og bakið við 200°C í 15 mín.
Maukið þistilhjörtun í matvinnsluvél og blandið parmesanosti saman við. Steikið laukinn á pönnu, í restinni af hvítlauksolíunni. Skerið tómata og ólífur til helminga og setjið á pönnuna þegar laukurinn er svo til tilbúinn og stráið þá oregano yfir. þegar rétturinn hefur verið 10 mín. í ofninum, takið þið paprikurnar út og fyllið með þistilhjartarmaukinu, setjið aftur inn í ofninn og bakið í 5 mín. til viðbótar með saltfiskinum. Setjið laukmaukið á diska, svo saltfisk og leggið svo paprikubita yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/693/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










