Katalónsk sósa

Hráefni
» 3–4 stk. skalottlaukar
» 7–12 stk. hvítlauksgeirar
» 1 stk. rauð paprika
» 75 g beikonsneiðar
» kvistur af rósmarín
» 6 stk. plómutómatar (eða úr dós)
» 2 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
» 1 dl rauðvín
» 3 dl kjúklinga- eða fiskisoð
» 100 g möndluspænir
» salt og svartur pipar úr kvörn
» 1 búnt steinselja

Aðferð

Afhýðið skalottlauka og skerið í sneiðar. Afhýðið og skerið hvítlauksgeirana í sneiðar. Fræhreinsið paprikuna og skerið í sneiðar. Skerið beikonsneið arnar í þunna strimla. Fjarlægið rósmarínnálarnar af stilknum. Afhýðið plómutómata með því að rista grunnan kross ofan á þá, látið þá síðan ofan í sjóðandi vatn í hálfa mínútu og að lokum í ískalt vatn til þess að hýðið losni af. Ef notaðir eru niðursoð nir tómatar þá eru þeir skornir í sneiðar. Látið ólífuolíu í pott og hitið við miðlungshita. Létt steikið skalottlauk, hvítlauk, papriku, beikon og rósmarín í olíunni. Bætið tómötum, rauðvíni og soði í pottinn og sjóðið við vægan hita í 15–20 mín.

Ristið möndluspænina gullinbrúna á þurri viðloðunarfrírri pönnu. Myljið möndluspænina og látið út í pottinn. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Að lokum, áður en sósan er framreidd, blandið þið saxaðri steinselju saman við.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar