Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Saltfiskur að hætti Katalóníubúa
- Hráefni
- » 800 g úrvals saltfiskur,
- » útvatnaður
- » 4 msk. hveiti
- » 1 dl ólífuolía
- » hvítur pipar úr kvörn
- »
- » Meðlæti
- » 4–8 stk. skalottlaukar
- » 8 stk. hvítlauksgeirar
- » jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía)
Aðferð
Skerið saltfiskinn í jafna bita og veltið honum upp úr hveiti. Látið ólífuolíuna í djúpa pönnu og hitið vel. Athugið að olían þarf að vera mjög heit. Steikið saltfiskinn upp úr olíunni fyrst á annarri hliðinni og síðan á hinni, snúið aðeins einu sinni við á meðan á steikingu stendur. Ef saltfiskurinn er ekki fullsteiktur, en orðinn gullinbrúnn og stökkur að utan, setjið hann þá inn í heitan ofn í nokkrar mín. Kryddið með pipar eftir smekk og berið fram á katalónskri sósu.Meðlæti
Afhýðið skalottlauka og hvítlauk og sjóðið heila ólífuolíu í 20 mín. eða þar til þeir eru orðnir mjúkir. Setjið laukana ofan á saltfiskbitana þegar þeir eru bornir fram. Athugið að olíuna er hægt að nota sem laukolíu til steikingar eða pensla á brauð. Skreytið saltfiskinn með rósmarínkvisti og að lokum smá slettu að ólífuolíunni góðu frá Monte Vibiano.
Þessi uppskrift er notuð í Katalónsk sósa
Meðlæti
Katalónsk sósa
- Hráefni
- » 3–4 stk. skalottlaukar
- » 7–12 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 stk. rauð paprika
- » 75 g beikonsneiðar
- » kvistur af rósmarín
- » 6 stk. plómutómatar (eða úr dós)
- » 2 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- » 1 dl rauðvín
- » 3 dl kjúklinga- eða fiskisoð
- » 100 g möndluspænir
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » 1 búnt steinselja
Aðferð
Afhýðið skalottlauka og skerið í sneiðar. Afhýðið og skerið hvítlauksgeirana í sneiðar. Fræhreinsið paprikuna og skerið í sneiðar. Skerið beikonsneið arnar í þunna strimla. Fjarlægið rósmarínnálarnar af stilknum. Afhýðið plómutómata með því að rista grunnan kross ofan á þá, látið þá síðan ofan í sjóðandi vatn í hálfa mínútu og að lokum í ískalt vatn til þess að hýðið losni af. Ef notaðir eru niðursoð nir tómatar þá eru þeir skornir í sneiðar. Látið ólífuolíu í pott og hitið við miðlungshita. Létt steikið skalottlauk, hvítlauk, papriku, beikon og rósmarín í olíunni. Bætið tómötum, rauðvíni og soði í pottinn og sjóðið við vægan hita í 15–20 mín.Ristið möndluspænina gullinbrúna á þurri viðloðunarfrírri pönnu. Myljið möndluspænina og látið út í pottinn. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Að lokum, áður en sósan er framreidd, blandið þið saxaðri steinselju saman við.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/695/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










