Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Bakaður saltfiskur
- Hráefni
- » 800 g úrvals saltfiskur,
- » útvatnaður
- » 100 g smjör
- » lítið búnt steinselja
- » 2–4 stk. hvítlauksgeirar
- » hvítur pipar úr kvörn
- »
- » Meðlæti
- » 1 stk. gulrófa
- » 1 dl vatn
- » 2 msk. smjör
- » 4–6 stk. kartöflur
- » 2–3 stk. laukar
- » 2–3 msk. ólífuolía
- » salt og pipar úr kvörn
Aðferð
Bræðið smjörið á pönnu. Afhýðið hvítlauksgeirana, hakkið með steinselju í lítilli matvinnsluvél og setjið saman við smjörið. Skerið saltfiskinn í fjóra jafna bita og veltið þeim síðan upp úr hvítlaukssmjörinu. Kryddið með hvítum pipar úr kvörn og bakið við 160°C í 10–12 mín., eftir þykkt, eða þar til fiskurinn er eldaður.Meðlæti
Afhýðið gulrófuna og skerið í fingurlanga bita. Setjið smjör og vatn í pott, saltið aðeins og látið suðuna koma upp. Sjóðið rófubitana í 5–7 mín. eða þar til þeir eru orðnir meyrir. Flysjið kartöflurnar og skerið í litla teninga. Afhýðið lauka og skerið smátt, í teninga. Steikið kartöflur og lauk upp úr smá ólífuolíu, við vægan hita, þar til hvort tveggja er orðið gullinbrúnt og eldað. Kryddið að lokum með salti og pipar.
Þessi uppskrift er notuð í Sósa með bökuðum saltfisk
Meðlæti
Sósa með bökuðum saltfisk
- Hráefni
- » 1 dl hvítvín
- » 1 dl kjúklinga- eða fiskisoð
- » 2 dl rjómi
- » 3 msk. grófkorna sinnep
- » 1 msk. hlynsíróp
- » salt
- » hvítur pipar úr kvörn
Aðferð
Sjóðið hvítvín og soð saman í potti. Sjóðið niður þar til um það bil helmingurinn af soðinu er eftir. Hellið rjóma út í og sjóðið saman þar til sósan hefur þést í bragði og þykknað. Bætið þá sinnepi og hlynsírópi saman við. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.Látið lauksteiktu kartöflurnar á miðjan disk og bakaðan saltfisk þar ofan á. Raðið rófunum efst og skreytið með litlum rósmarínkvisti. Rósmarín gefur góðan ilm í réttinn en getur sjálft sem kryddjurt verið of megnugt í bragði með þessum saltfiski. Hellið sinnepsósunni umhverfis saltfiskinn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/697/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










