Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Saltfiskur með gljáðum lauk
- Hráefni
- » 800 g úrvals saltfiskur, útvatnaður
- » 4 msk. hveiti
- » 1 dl ólífuolía til steikingar
- » hvítur pipar úr kvörn
- »
- » Meðlæti
- » 2–4 stk. laukar
- » 2 msk. smjör
- » 4 stk. bökunarkartöflur
- » 1/2 dl rjómi
- » 2 msk. sinnep
- » gróft sjávarsalt og hvítur pipar
Aðferð
Skerið saltfiskinn í jafna bita og veltið upp úr hveiti. Látið alla ólífuolíuna í djúpa pönnu og hitið vel. Athugið að olían þarf að vera mjög heit. Steikið saltfiskinn upp úr heitri olíunni fyrst á annarri hliðinni og síðan á hinni, snúið aðeins einu sinni við á meðan á steikingu stendur. Ef saltfiskurinn er ekki fullsteiktur, en orðinn gullinbrúnn og stökkur að utan, setjið hann þá inn í heitan ofn í nokkrar mín. Kryddið með pipar eftir smekk.Meðlæti
Afhýðið lauk og skerið í sneiðar. Bræðið smjörið í potti og sjóðið laukinn í smjörinu í um 20 mín., við vægan hita. Hrærið stöðugt í með sleif þar til að laukurinn er orðinn gullinbrúnn og sætur. Saltið og piprið eftir smekk.
Bakið kartöflurnar í ofni. Hreinsið innan úr hýðinu með skeið og látið í pott. Hellið rjóma út í og bætið sinnepi saman við. Hrærið gróflega saman og saltið og piprið eftir smekk.
Þessi uppskrift er notuð í Kryddsmjör
Meðlæti
Kryddsmjör
- Hráefni
- » 200 g smjör
- » 1/4 stk. rautt chilialdin
- » 1 stk. skalottlaukur
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » lítið búnt basilíka
- » lítið búnt steinselja
- » 1/2 stk. sítróna, safi
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
Aðferð
Fræhreinsið chili og skerið smátt ásamt skalottlauk, hvítlauk og basilíku og steinselju. Bræðið smjörið í potti og látið sjóða þar til það er farið að brúnast örlítið. Takið pottinn þá strax af hitanum og kreistið safann úr sítrónunni út í. Bætið fínt skornu chili, lauk og kryddjurtum út í pottinn og saltið og piprið eftir smekk. Látið góðan skammt af maukuðum kartöflum á annan helming disks og væna skeið af gljáða lauknum á hinn helminginn. Leggið steikta saltfiskinn þar ofan á og heitt brúnað kryddsmjörið umhverfis. Skreytið með basilíkulaufi eða steinselju.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/699/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










